Bjóða Akrahreppi upp í sameiningardans

Mögulega fá Skagfirðingar að kjósa um sameiningu sveitarfélaganna tveggja í Skagafirði meðfram alþingiskosningum í haust en byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar ákvað á fundi sínum fyrr í vikunni að bjóða hreppsnefnd Akrahrepps til formlegra viðræðna þar um.

Til stuðnings sveitarfélögunum í viðræðuferlinu er hugmyndin að leita liðsinnis óháðra ráðgjafa til að meta kosti og galla mögulegrar sameiningar og þau tækifæri sem í henni geta falist.

Í greinargerð tillögunnar segir að mikilvægt sé að vinna faglegt mat á kostum, göllum og tækifærum sem felast í sameiningu sveitarfélaganna tveggja og sýn um þá uppbyggingu sem þarf að ráðast í til að styrkja samkeppnishæfni og búsetuskilyrði samfélagsins í Skagafirði. Lagt er til að hvort sveitarfélag um sig tilnefni fimm fulltrúa sem leiði viðræðurnar og jafnframt verði sótt um fjárframlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna þeirrar vinnu.

Er það tillaga ráðsins að starfshópurinn skili af sér niðurstöðu fyrir lok ágúst og að íbúar sveitarfélaganna fái þannig tækifæri til að koma afstöðu sinni á framfæri í kosningu um sameiningu sveitarfélaganna tveggja, samhliða alþingiskosningum 26. september næstkomandi.

„Með því móti er tryggt að ef af sameiningu verði hafi íbúar beggja sveitarfélaga lýðræðislega aðkomu að þeim framboðslistum sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum vorið 2022,“ segir í fundargerð byggðaráðsins, sem birt var fyrr í dag, en jafnframt var samþykkt að fulltrúar sveitarfélagsins í viðræðunum verði byggðarráðið auk sveitarstjóra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir