Björgunarsveitin Húnar - verkefni sveitarinnar sumarið 2013

Björgunarsveitin Húnar tók þátt í Hálendisvaktinni að venju en sveitin hefur verið með öll sumrin frá því að verkefni byrjaði. Húnar voru við á vaktinni Norðan Vatnajökuls eða nánar tiltekið með aðstöðu í Dreka. Vikan var frekar róleg og engin stóróhöpp að utan smáfestur og minniháttar verkefni. Því gafst sveitinni góður tími til að skoða sig um. Þó þetta sé í þriðja skipti sem sveitin er á þessu svæði er enn nóg til að skoða.

Á vef björgunarsveitarinnar Húnar er búið að birta helstu verkefni sveitarinnar þetta sumarið.

14-21. júli Hálendisvakt Norðan Vatnajökuls

16. júli Ósar

Ferðamaður á bílaleigubíll lenti utan vegar við Ósa áVatnsnesi, farið var á Húna 1 á staðinn og bíllinn spilaður aftur upp á veg.

Við vaðið á Lindá en þarna er búið að koma bílaleigubíl á þurrt. Mynd: hunar.123.is

25. júlí Fjallaskokk

Að venju vorum við með gæslu við Fjallaskokkið. Ekki leit vel út rétt fyrir ræsingu er Vatnesfjallið var vafið inn í þéttri þoku. En aðstæður breyttust og þokunni létti á fjallinu en í staðinn lagðist hún yfir Hvammstanga síðar um kvöldið þannig að þeir sem voru á fjallinu voru í sumarblíðu meðan þeir sem voru vestan við fjallið þurftu að þrauka í þokunni. Allt gekk vel fyrir sig og allir komust til baka að lokum.

8. ágúst Kolugljúfur

Óskað var eftir aðstoð okkar við að ná fé sem hafði komið sér í sjálfheldu í Kolugljúfri. Fóru fjórir félagar í verkefnið en síga þurfti niður í gljúfrið til að komast að skjátunum. Vel gekk að koma þeim úr sjálfheldunni.

Tekið fyrir rétt rúmu ári, vonandi verða aðstæður ekki svona eftir að veðrið verður gengið yfir. Mynd: hunar.123.is

27. ágúst F3 Fjárleitir

Óskað var eftir aðstoð okkar við fjárleitir og farið var með Húna 2, Húna 5 og Húna 6 (fjórhjólin) á Víðidalstunguheiði og er reiknað með að þeir sem fóru á hjólunum komi ekki niður fyrr en á í dag, fimmtudag. Þegar farið var yfir þann mannskap sem við höfum á útkallsskrá taldist okkur til að rúmlega 20 félagar í sveitinni væru í eða á leiðinni í fjárleitir í Húnaþingi-vestra.

Fleiri fréttir