Björn Hákon Sveinsson ráðinn aðstoðarþjálfari Tindastóls
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
20.11.2013
kl. 13.34
Björn Hákon Sveinsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari hjá knattspyrnudeild Tindastóls við hlið nýráðins þjálfara, Jón Stefán Jónsson. Björn Hákon sem fæddur er árið 1984, er markvörður og hefur leikið 138 meistaraflokksleiki.
Björn Hákon er Húsvíkingur og lék þar lengi en var síðan í þrjú ár í herbúðum Þórs á Akureyri en síðasta keppnistímabil lék Björn Hákon með liði KF. Í tilkynningu frá knattspyrnudeildinni segir að Björn Hákon sé einkaþjálfari og er hann í námi í sjúkraþjálfun um þessar mundir.