Blóðbankabíllinn á Sauðárkróki og Blönduósi
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Gagnlega hornið
13.05.2014
kl. 09.35
Blóðbankabíllinn er nú á ferðinni á Norðurlandi vestra. Hann verður staðsettur við Skagfirðingabúð á Sauðárkróki í dag, þriðjudaginn 13. maí kl. 10-17 og aftur á morgun, miðvikudaginn 14. maí, kl. 9-11:30. Þaðan fer hann á Blönduós og verður staðsettur við N1 frá kl. 14:00-17:00 á morgun, miðvikudag.
Í tilkynningu á heimasíðu Blóðbankans eru allir hvattir til að gefa blóð, með slagorðinu „blóð er lífgjöf.“