Brandugla í fjósinu

Brandugla hefur undanfarna mánuði vanið komur sínar í hlöðuna á Stóra-Ósi og Syðsta-Ósi í Húnaþingi vestra. Böðvar Friðriksson á Stóra-Ósi segist hafa orðið var við ugluna í hlöðunni síðastliðið haust.

Það var svo miðvikudagsmorguninn 12. febrúar s.l. að Sveini Friðrikssyni á Stóra-Ósi brá heldur betur í brún er hann var mættur í morgunverkin í mjaltagryfjunni í fjósinu. Þar var uglan mætt og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd Böðvars var hún afar nálægt þeim bræðrum. Það þykir sennilegt að hún hafi verið hálf blind vegna ljóssins og því hafi Sveinn komist eins nálægt henni og sést á myndunum. Hún varð þeirra þó var á endanum og flögraði til baka í hlöðuna.

Nokkur ár eru þó síðan Sveinn Óli Friðriksson, Stóra-Ósi, og Jón Böðvarsson, Syðsta-Ósi, urðu varir við uglu í nágrenninu, eða í kringum 2009 eða 2010.

Brandugla er eina uglutegundin sem verpir hér á landi að staðaldri og eru mýs helsta fæða hennar. Það má því ætla að það hafi verið eitthvað ætilegt í hlöðunni. Þegar ljósin eru kveikt í hlöðunni hefur uglan flögrað um þar til hún finnur leiðina út.

Norðanátt segir frá þessu og meðfylgjandi mynd sendi Böðvar til Norðanáttar.

Fleiri fréttir