Brauð- og kökugerðin 35 ára í júní

Brauð- og kökugerðin á Hvammstanga er rótgróið fyrirtæki sem fagnar 35 ára afmæli í júní. Eigendur hafa verið þeir sömu frá upphafi, en það eru Svava Lilja Magnúsdóttir og Sveinn Benónýsson sem eiga fyrirtækið á móti helmings hlut Kaupfélags Vestur-Húnvetninga.

Þekktust er Brauð-og kökugerðin líklega fyrir hrökkbrauðin góðu, Hrökk og Stökk, sem fáanleg eru í Skagafirði, Húnavatnssýslum og alveg suður á Seltjarnarnes. Nýjasti söluaðilinn er Þín verslun við Seljabraut. Þeir sem farið hafa með hópa í Skólabúðirnar á Reykjum í Hrútafirði kannast líka vel við hrökkbrauðið góða.

„Hrökkbrauðið hefur verið framleitt síðan 2001 og er það sem við erum helst að flytja í burtu, við förum reglulega með fullan bíl suður, segir Svava Lilja Magnúsdóttir í viðtali í nýjasta tölublaði Feykis sem út kom í dag.

Fleiri fréttir