Dæmdur fyrir slæman aðbúnað hrossa
Nýlega dæmdi Héraðsdómur Norðurlands vestra bónda í Húnaþingi vestra til sektar kr. 50.000- í ríkissjóð en málið höfðaði lögreglustjórinn á Blönduósi 5. nóvember s.l. fyrir brot gegn dýraverndunarlögum, lögum um búfjárhald og reglugerð um aðbúnað og heilbrigðiseftirlit hrossa.
Málavextir voru þeir að eftir heimsókn ráðunautar og forðagæslumanns að bænum hinn 12. apríl 2010 þótti þeim ástæða til að taka fram í skýrslu að umhirða þriggja hesta væri óviðunandi. Tveir hestanna hafi verið með svo framvaxna hófa að táin stóð upp í loft sem leiddi til þess að fótastaða þeirra var röng. Þá hafi einn hestur, grár að lit, verið bæklaður á framfæti, líkast til brotinn eða farinn úr lið og hann af þeim sökum átt erfitt með gang.
Í skýrslunni kemur einnig fram að hestarnir hafi ekki verið kappfóðraðir og sá grái farinn að leggja nokkuð af. Í kjölfarið sendi Matvælastofnun bréf til lögreglustjórans á Blönduósi og kærir ákærða fyrir meint brot á lögum um dýravernd og reglugerð um aðbúnað hrossa.
Í vitnaleiðslum kemur fram að ekki hafi verið víst að hrossið hafi verið fótbrotið og féll ákæruvaldið frá þeim þætti ákærunnar. Einnig telst það ósannað að holdastig hestsins hafi verið svo slæmt að efni hafi verið til að refsa ákærða fyrir það. Þótti því rétt að sýkna ákærða af þeim þætti ákærunnar.
Að mati héraðsdýralæknis var ástandið svo alvarlegt að eftir heimsókn hans og héraðsráðunautar til bóndans 19. apríl 2010 vildi hann að strax yrði hafist handa við að bæta aðbúnað og umhirðu búfjárins og í bréfi héraðsdýralæknis til lögreglustjórans á Blönduósi er krafa um aflífun hrossanna.
Önnur vitni sem komu fyrir dóm töldu hins vegar öll að hrossin hafi verið í viðunandi holdum.