Deiliskipulag á lóð Grettisbóls við Laugarbakka
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra þann 15. júlí síðastliðinn var samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Grettisból við Laugarbakka í Miðfirði. Markmiðið er að skipuleggja útivistasvæði Grettisbóls sem fjölskyldusvæði þar sem þemað eru þrautir sem tengjast víkingum og Grettissögu.
Á vef Húnaþings vestra er auglýst eftir athugasemdum við skipulagstillöguna, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagssvæðið er um 3. ha að stærð. Markmiðið er að skipuleggja útivistasvæði Grettisbóls sem fjölskyldusvæði þar sem þemað eru þrautir sem tengjast víkingum og Grettissögu. Deiliskipulagsuppdráttur með greinargerð liggur frammi á skrifstofu Húnaþings vestra frá 22. júlí 2013 með athugasemdarfresti til og með 10. september 2013.
Einnig má nálgast skipulagstillöguna á heimasíðu Húnaþings vestra,
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 eða á netfangið alla@hunathing.is merkt „deiliskipulag á lóð Grettisbóls við Laugarbakka í Miðfirði í Húnaþingi vestra, sept. 2013”.