Dömukvöld á laugardagskvöldið
Mfl. kvenna í fótbolta kynnir með stolti dömukvöld á Mælifelli laugardagskvöldið 2. nóvember. Húsið opnar kl. 19:30 en dagskráin hefst á slaginu 20:30. Aðgangseyrir er einungis 2000 krónur og aldurstakmark er 16 ára.
Boðið verður upp á fordrykk í boði Tengils og léttar veitingar í boði Mjólkursamlagsins, Bakarísins og Skaffó. Kynnir kvöldsins er hin óviðjafnanlega Kristín Einarsdóttir. Söluborð og kynningar frá flottum fyrirtækjum verða á staðnum. Tískusýningar verða frá J.Ey, Eygló Karólínu og Dís Design og „Make Over“ á vel völdum dömum úr bænum í samstarfi við hárgreiðslu- og snyrtistofur bæjarins.
Sigvaldi og Sunna Líf mæta og halda uppi stuðinu. Ræðumaður kvöldsins verður Sigga Dögg kynfræðingur. Happdrættismiðar eru seldir á staðnum og eru vinningarnir veglegir. Helstu styrktaraðilar kvöldsins eru Arionbanki, KS, Mælifell og Ólafshús, Tengill og Sauðárkróksbakarí.