Donna Maree með andstæða póla

„Andstæðir pólar“ er sýning ástralska ljósmyndarans og listakonunnar, Donnu Maree Robinson. Sýningin er unnin með því að rannsaka og myndtaka staði í íslensku landslagi, afurðin er persónuleg upplifun hennar af stöðum sem örva uppsprettur myndmálsins. Sýningin blandar saman staðreyndum og skáldskap og kallar fram draumkennd hughrif eins og mýkt, gagnstætt hinni þungu kröfu á að upplýsa um leyndarmál náttúrunnar og listamannsins sjálfs.

Donna Maree Robinson hefur sýnt í New York og víðsvegar um Ástralíu, hún er með mastersgráðu í nútímalistum og hefur sérstakan áhuga á stafrænni notkun mynda- og upptökuvéla. Með óbilandi áhuga á að rannsaka umhverfi okkar og tilvist mannsins í tíma og rúmi, þá hefur Donna nýtt sér fjölbreytilegar tegundir listforma við vinnu sína við mótun listaverka, á almannafæri, í sýningarsölum og á hátíðum.

Sýningin verður opin 14. og 15. desember frá kl. 14:00-17:00 í Gúttó á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir