Dósa- og flöskusöfnun á Króknum nk. miðvikudag
Miðvikudaginn 25. febrúar nk. munu iðkendur Körfuknattleiksdeildar Tindastóls ganga í hús á Króknum milli kl. 17-19 og safna dósum og flöskum.
Ef þið eruð vant við látin, en viljið gefa nokkrar dósir og/eða flöskur, þá er ykkur velkomið að setja poka fyrir utan hurðina hjá ykkur merkta Tindastól og við kippum þeim með okkur.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls / Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls
