Ekki óútskýrður kynbundinn launamunur
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
22.05.2014
kl. 11.28
Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra sl. fimmtudag var fjallað um niðurstöðu kjarakönnunar meðal starfsmanna Húnaþings vestra. Sveitarstjórn samþykkti að ekki væru fyrir hendi forsendur til að aðhafast frekar vegna niðurstaðna könnunarinnar þar sem ekki hafi komið fram óútskýrður kynbundinn launamunur.
Við afgreiðslu málsins var sveitarstjórna falið að koma skilaboðum um nauðsyn á leiðréttingu lægstu launa til Launanefndar sveitarfélaga. Elín R. Líndal sat hjá við afgreiðslu málsins.