Firmakeppni Þyts í dag

Hestamannafélagið Þytur heldur firmakeppni á útivellinum í Kirkjuhvammi í dag, fimmtudaginn 1. maí, og hefst hún kl. 17:00. Búningaþema verður í keppninni og segir á heimasíðu Þyts að gaman væri að sjá sem flesta í búningum, þó er það ekki skylda. „Allir mega taka þátt hvort sem þeir mæta í búning eða ekki.“

Keppt verður í karla-, kvenna-, unglinga-, barna- og pollaflokki. Skráning fer fram á staðnum og gott er að vera mættur aðeins tímanlega.

Dagsskrá

  • pollaflokkur
  • barnaflokkur
  • unglingaflokkur
  • kvennaflokkur
  • karlaflokkur

 

Fleiri fréttir