Fjallað um Iceprótein og Sjávarleður á vef um þróun verðmætasköpunar
Í tilefni af Sjávarútvegsráðstefnu sem fram fór dagana 21. og 22. nóvember opnaði Landsbankinn sérstakan vef um sjávarútveg þar sem fjallað er um þróun verðmætasköpunar í sjávarútvegi, allt frá því fiskur er veiddur og þar til hann er kominn til neytenda í ýmsu formi. Jafnframt gaf Landsbankinn út tímarit um sjávarútveg en í því er fjallað um umfang sjávarútvegs í íslensku hagkerfi og áhersla lögð á hvernig hægt sé að auka enn á verðmætasköpun. Tvö fyrirtæki á Sauðárkróki, Iceprótein og Sjávarleður, eru meðal annarra heimsótt.
Birt eru viðtöl við þær Hólmfríði Sveinsdóttur framkvæmdastjóra Iceproteins og Sóleyju Sigmarsdóttur söluráðgjafa hjá Sjávarleðri auk annarra fulltrúa fyrirtækja í sjávarútvegi, á sviði útgerðar, tækniþróunar og nýsköpunar. Jafnframt er að finna tvær viðamiklar greinar Hagfræðideildar Landsbankans, annars vegar um nýtingu þorsks úr Atlantshafi og hins vegar er frumbirt spá deildarinnar um rekstrarhorfur útgerðarinnar á næstu árum.
Sjá HÉR