Fjárhagsáætlunargerð í Húnaþingi vestra
Sveitarstjórn Húnaþings vestra vinnur nú að gerð fjárhagsáætlunar fyrir aðalsjóð og fyrirtæki sveitarfélagsins fyrir árið 2014. Í tilkynningu á vef sveitarfélagsins er félagasamtökum og einstaklingum í Húnaþingi vestra sem hyggjast sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári bent á að senda skriflegar og undirritaðar umsóknir þar um til sveitarstjóra.
Hyggist félagasamtök eða einstaklingar sækja um fjárstyrk vegna verkefnis eða málefna sem Húnaþing vestra veitti styrk til á árinu 2013 skal nýrri umsókn fylgja skrifleg greinargerð um ráðstöfun styrksins á ársins 2013. Umsóknir um styrki eða fjárframlög á árinu 2014 skulu hafa borist sveitarstjóra eigi síðar en 5. október næstkomandi. Umsóknir sem kunna að berast að þeim fresti liðnum munu ekki njóta forgangs við afgreiðslu sveitarstjórnar, segir í tilkynningunni. Ekki er tekið við umsóknum í tölvupósti.