Flotbryggjur á fleygiferð
Síðan smábatahöfnin á Sauðárkróki var tekin í notkun hefur hreyfing á flotbryggjunum verið að valda smábátaeigendum vandræðum en þessi hreyfing er að mestu leyti vegna sterkrar úthafsöldu sem berst inn í höfnina. Hreyfingin er mun meiri við landganga flotbryggjanna, upp við grjótgarðinn, þar sem straumar vegna undiröldunnar eru meiri. Að sögn Indriða Þórs Einarssonar sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sveitarfélagsins hefur verið ákveðið að bæta við tveimur ankerum við landenda hverrar flotbryggju til að dempa hreyfinguna.
-Útfærsla á ankerunum hefur verið unnin af Króla, verktaka sem sá um smíði og uppsetningu bryggjanna, ásamt sérfræðingum Seaflex í Svíþjóð sem framleiða ankerisfestingarnar. Ankerunum verður komið fyrir um leið og þau verða afhend frá framleiðanda, en vonast er til þess að það verði um næstu mánaðarmót, segir Indriði Þór.
Hann segir að ein af ástæðum þess að undiralda berst inn í höfnina sé sú að "vasi" sem dýpkaður var framan við Norðurgarð við hafnarmynnið fyrir nokkrum árum síðan hefur fyllst upp. Það leiðir af sér að undiralda berst í meira mæli inn í höfnina en áður. Þetta stendur einnig til bóta því samkvæmt áætlunum Vegagerðarinnar er gert ráð fyrir viðhaldsdýpkun hafnarinnar á næsta ári.