Fræðslukvöld um þjálfun tölts
feykir.is
Hestar, Vestur-Húnavatnssýsla
11.02.2014
kl. 09.43
Fimmtudaginn 13. febrúar verður haldið fræðslukvöld um þjálfun tölts í reiðhöllinni á Hvammstanga. Farið verður yfir grunnatriði tölts, hvernig á að þjálfa það með tilliti til ákveðinna galla í gangtegundinni og hvernig þeir eru lagaðir og einnig hvernig má halda áfram að bæta tölt þó það sé gott.
Fræðslukvöldið er haldið af þremur reiðkennaraefnum Hólaskóla, þeim Arnari Bjarki Sigurðarsyni, Hilmari Þór Sigurjónssyni og Petronella Hannula. Kvöldið byrjar á fyrirlestri um tölt og tæknileg atriði við þjálfunina. Þau atriði verða síðan sýnd í í sýnikennslu og hvernig má nota þau til að hjálpa við tölt reið.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 19:00 og aðgangseyrir er krónur 500.