Framhaldssagan um endurhæfingarsundlaugina
Við sögðum frá því í gær að undirskriftasöfnun til stuðnings sundlauginni væri komin í gang og er skemmst frá að segja að hún hefur fengið fljúgandi start en þegar þetta er skrifað hafa 877 manns sett nafn sitt við undirskriftasöfnunina.
Hlekkur á söfnun
Feykir hafði samband við Magnús Barðdal sveitarstjóra til heyra hvernig sveitarstjórn tæki á þessum alvarlegur tíðindum.
„Já, þetta er grafalvarlegt mál. Við áttum fund með forsvarsmönnum HSN í gær og fórum yfir málið. Þau bera fyrir sig rekstrarerfiðleika og að þessi ákvörðun sé liður í erfiðum niðurskurði sem stofnunin stendur frammi fyrir.
Það er að okkar mati ekki forsvaranlegt að loka þessari þjónustu, enda er hún lífsnauðsynleg fyrir stóran hóp fólks á svæðinu. Þau rök að þessi þjónusta sé ekki í boði á öðrum stöðum teljum við ekki málefnaleg. Innviðirnir eru til staðar og tæplega 100 manns á dag, úr fjölbreyttum hópum, nýta laugina og greiða fyrir afnot af henni.
Það er jafnframt alveg ljóst að lokun þessarar þjónustu mun auka álag á öðrum sviðum heilbrigðisstofnunarinnar og því má efast um raunverulegt hagræði af lokuninni.
Sveitarfélagið er nú að undirbúa gögn til að leggja fram við ráðherra vegna málsins.” Sagði Magnús Barðdal.
Feykir mun fylgjast með málum áfram. /hmj
