Framkvæmdir hjá KVH

Í pakkhúsi KVH hefur verið unnið hörðum höndum að því að stækka búvöruverslunina um helming. Verið er að gera breytingar innanhúss þannig að verslunarrýmið undir búvöruna fær aukið rými.

„Við erum í raun að rúmlega tvöfalda það rými sem við munum nota undir hina eiginlegu verslun. Þetta eru bara breytingar sem gera það að verkum að stærri hluti okkar vöruframboðs fer inn í upphitað rými og upp í hillur þar,“ sagði Reimar Marteinsson, kaupfélagsstjóri þegar Feykir hafði samband við hann í dag.

Einnig hafa verið gerðar dálitlar breytingar á matvörubúðinni þar sem tveimur djúpfrystum var skipt út fyrir einn stærri.

 

Fleiri fréttir