Frumsýningarkvöld Thrillers í Félagsheimilinu Hvammstanga

Leiklistarval Grunnskóla Húnaþings vestra frumsýnir söngleikinn Thriller eftir Gunnar Helgason, byggðan á lögum Michael Jackson, í Félagsheimilinu á Hvammstanga í kvöld. Uppselt er á sýninguna en einnig verða sýningar 19., 23. og 25. mars. Allar sýningar hefjast kl. 20:00.

„Það sem heillar okkur mest við þennan söngleik er í raun húmorinn og tónlistinn. Einnig er boðskapurinn góður og forvarnargildið í verkinu gott. Það er komið inn á skaðsemi vímuefna, kynþáttafordóma og virðingu,“ sagði Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttur kennara við skólann í samtali við Feyki fyrir nokkru en hún er leikstjóri söngleiksins, ásamt Eydísi Báru Jóhannsdóttur.

Ennfremur sagði Guðrún Ósk virkilega gaman að vinna með krökkum að svona verkefni, þau hafi flotta sýn á hlutina og komi henni endalaust á óvart.

Miðaverð er 2.500 kr., en hver fjölskylda greiðir ekki yfir 5.000 kr. Tekið er fram að ekki er posi á staðnum. Miðapantanir fara fram í síma 895-1905 (Ragga Sveins) og á netfanginu ragga@hunathing.is. Taka þarf fram á hvaða sýningu er verið að panta miða.

Að neðan er hljóðdæmi úr söngleiknum af facebook-síðu Leiklistarvals Grunnskóla Húnaþings vestra.

Fleiri fréttir