Fuglastígur á Norðurlandi vestra

Selasetur Íslands tók í byrjun árs að sér verkefnastjórn í verkefninu Fuglastígur á Norðurlandi vestra. Markmið  verkefnisins er að undirbúa uppbyggingu fuglaskoðunarstíga á Norðurlandi vestra þar sem ferðamönnum er auðveldað aðgengi að hinum ýmsu fuglaskoðunarstöðum víðs vegar um landshlutann.

Sagt er frá þessu á vef Selasetursins. Þar kemur fram að verkefnið sé samstarfsverkefni Selasetursins, Ferðamálafélags V-Hún, Ferðamálafélags A-Hún, Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði, Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum og Náttúrustofu Norðurlands vestra.

Verkefnið hófst formlega í lok síðasta árs og verður fyrsta áfanga lokið í árslok þessa árs. Hlaut það styrk frá Vaxtarsamningi Norðurlands Vestra.

Fleiri fréttir