Fundur fyrir eldri borgara í Félagsheimilinu á Hvammstanga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
20.01.2015
kl. 09.21
Upplýsinga- og umræðufundur um þá þjónustu sem eldri borgurum í Húnaþingi vestra stendur til boða verður haldinn í dag, þriðjudaginn 20. janúar, kl. 17-19 í Félagsheimilinu á Hvammstanga.
Á vef Húnaþings vestra kemur fram að á fundinn mæta fulltrúar frá fjölskyldusviði Húnaþings vestra, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Tryggingastofnun/Sjúkratryggingum Íslands, Félagi eldri borgara og kirkju til að kynna sína þjónustu og svara spurningum. Einnig mun sjúkraþjálfi kynna helstu hjálpartæki fyrir eldri borgara.
„Hvetjum alla 60 ára og eldri og ekki síður aðstandendur til að mæta og kynna sér þessi mál,“ segir loks á vefnum.
Boðið verður upp á molakaffi.