Fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar
Þá fer að styttast í fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar en það verður laugardaginn nk., 8. febrúar. Keppt verður í fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki 17. ára og yngri (fædd 1997 og seinna).
Skráning er fyrir miðnætti miðvikudagsins 5. febrúar á netfangið thytur1@gmail.com. Fram þarf að koma nafn og kennitala knapa, lið, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða.
Það verða tveir inn á í einu og er prógrammið í forkeppni, hægt tölt - fegurðartölt - fet - brokk - stökk og er stjórnað af þul. En úrslit verða riðin eins og venjulega, hægt tölt - brokk - fet - stökk - fegurðartölt.
Skráningargjaldið er 2.000 fyrir fullorðna og 1.000 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.
Reglur liðakeppninnar má sjá hér.
Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.