Gæðingur og gamanmál í Bíó Paradís
feykir.is
Skagafjörður
30.10.2013
kl. 13.09
Það verður sannkallað skagfirskt síðdegi í Bíó Paradís við Hverfisgötu í Reykjavík næstkomandi föstudag 1. nóvember. Tilefnið er frumsýning bíósins á heimildarmyndinni Búðin - Þar sem tíminn stendur í stað. Dagskráin hefst kl. 18:00 með því að Björn Jóhann Björnsson, blaðamaður, les upp úr þriðju bók sinni af Skagfirskum skemmtisögum og fer með gamanmál um aðalpersónu Búðarinnar, Bjarna Haraldsson, kaupmann á Sauðárkróki.
Að því loknu verður horft á myndina. Í tilefni dagsins fylgir hverjum miða sérvaldur Gæðingur úr bruggsmiðju Árna Hafstað, bónda í Útvík í Skagafirði. Búðin verður sýnd í Bíó Paradís kl: 18:00 á hverjum degi dagana 1.-7. nóvember.