Gasmengun fer heldur minnkandi

Í dag, fimmtudag, má búast við gasmengun vestan eldstöðvanna, frá Eyjafirði og sunnanverðum Vestfjörðum í norðri, suður yfir Reykjanes. Styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) í andrúmsloftinu í Skagafirði er vel undir hættumörkum, að sögn Vernharðs Guðnasonar formanns Almannavarnanefndar, og fer gasmengun heldur minnkandi í dag frá því í gær.

Vernharð vekur athygli á því að í þröngum dölum og lægðum getur safnast fyrir meiri mengun og ef fólk er við slíkar aðstæður, og finnur til óþæginda í öndunarfærum eða augum, er viðkomandi ráðlagt að vera innandyra, loka gluggum og hækka á ofnum til að koma í veg fyrir að mengun berist inn.

Gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni, 17. október. Mynd/VÍ Gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni, 17. október. Mynd/VÍ

Á morgun, föstudag, er áfram spáð austanátt og því má búast við gasmengun vestan eldstöðvanna, frá sunnanverðum Húnaflóa suður yfir Reykjanes. Áfram verður fylgst grannt með mælingum á loftgæðum, en mælirinn er staðsettur á lögreglustöðinni á Sauðárkróki.

Nánari upplýsingar má finna á vef Veðurstofu Íslands, Umhverfisstofnunar og Sóttvarnarlæknis.

Fleiri fréttir