Gengið frá ráðningu nýs golfþjálfara
Nýr golfþjálfari er genginn til liðs við Golfklúbb Sauðárkróks fyrir sumarið 2014. Samkvæmt fréttatilkynningu var gengið frá ráðningu Hlyns Þórs Haraldssonar PGA þjálfara í blíðskaparveðri síðasta vetrardag í klúbbhúsinu á Hlíðarenda.
„Hlynur er útskrifaður með réttindi PGA golfkennara úr norska golfkennaraskólanum, starfaði sem yfirþjálfari hjá Sticklestad golfklúbbnum og síðustu ár sem þjálfari hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar,“ segir um feril þjálfarans í tilkynningu.
Hlynur mun sjá um alla þjálfun hjá klúbbnum og einnig koma að skipulagningu og uppbyggingu kennslutilhögunar til næstu ára. „Það er mikill hvalreki fyrir klúbbinn að fá Hlyn til starfans og er mikil tilhlökkun og væntingar bundnar við komu hans,“ segir loks í tilkynningunni.