Global Game Jam á Kollafossi í lok janúar
Þann 29. til 31. janúar næstkomandi verður haldið „Global Game Jam“ um allan heim, þar með talið á Kollafossi í Vesturárdal í Húnaþingi vestra. Þar hefur undanfarin tvö ár verið haldið hið óvenjulega Isolation Game Jam.
Game jam, eða „leikjasmiðja“, er tilkomið úr frá hugmynd úr tónlistarheiminum, er tónlistarmenn koma saman og „djamma“, þ.e. spila af fingrum fram og leika sér. Með game jam er sú hugmynd yfirfærð á leikjagerð. Þá hittast leikjahönnuðir og áhugafólk um leikjagerð, og búa til leiki og spil á takmörkuðum tíma (oftast rúmlega 48 tímar). Þetta fyrirkomulag hentar vel lengra komnum jafnt sem nýgræðingum, og er oft besta leiðin til þess að hella sér út í leikjahönnun, sérstaklega þar sem óreynt fólk getur oft fengið leiðsögn og hjálp frá lengra komnum.
Global Game Jam lýsir sér þannig að fólk hittist á föstudegi, fær þema frá Global Game Jam samtökunum, og skiptir sér niður í hópa eða vinnur einstaklingsvinnu. Búnir eru til leikir á 48 klukkutímum. Á sunnudegi enda síðan herlegheitin og afrakstur helgarinnar er kynntur.
Matur, svefnaðstaða yfir gamejam’ið, og fleira er innifalið í miðaverði, en miðaverð er 7.000 krónur fyrir heimafólk. Ekkert eiginlegt aldurstakmark er á þessum viðburði en þó er miðað við 16 til 18 ára og uppúr. Vakin er athygli á því að takmarkað pláss er til að taka þátt í viðburðinum.
Nánari upplýsingar, og skráning á er á vefsíðunni www.kollafoss.farm. Einnig er hægt að hafa samband við Jóhannes Gunnar Þorsteinsson á info@kollafoss.farm, eða í síma 499-2648 / 846-6149.
Þess má geta að fjallað var um Leikjamiðstöðina á Kollafossi í þriðja þætti Fyrirmyndafrumkvöðla, sem FeykirTV ogh Skotta film framleiddu á síðasta ári.