Grunnskólabörn útbúa ferðamannabækling
feykir.is
Skagafjörður
22.05.2014
kl. 16.04
Börn og unglingar í leikskólanum Tröllaborg og Grunnskólanum austan Vatna í Skagafirði unnu á dögunum skemmtilegt samstarfsverkefni sem er bæklingurinn Heimabyggðin okkar-Áhugaverðir staðir séðir með augum barnanna.
Hvert aldursstig tók að sér ákveðinn verkþátt í útgáfunni og mun afraksturinn liggja frammi á helstu ferðamannastöðum í sumar. Verkefnið var á dögunum tilnefnt til foreldraverðlauna Heimila og skóla. Nánar er fjallað um verkefnið í 19. tölublaði Feykis sem út kom í dag.