Harmónikkuhátíð um helgina

Harmónikkuhátíð fjölskyldunnar verður haldin í félagsheimilinu Ásbyrgi í Miðfirði um helgina. Á föstudagskvöldið verður dansleikur frá klukkan 21 til 01 þar sem stórsveit Nikkólínu leikur fyrir dansi. Á laugardag klukkan 14 verður skemmtun með ungu tónlistarfólki úr Dölum og Vestur-Húnavatnssýslu og á eftir verður kaffihlaðborð. Um kvöldið leikur síðan hljómsveit Sveins Sigurjónssonar fyrir dansinum frá klukkan 21-01. Nikkólína og Harmónikkuunnendur í Húnavatnssýslum bjóða alla hjartanlega velkomna á hátíðina.

Fleiri fréttir