Hátíðardagskrá stéttarfélagana í Skagafirði 1. maí

Hátíðardagskrá í tilefni af 1. maí verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í dag og hefst hún kl. 15. Ræðumaður verður Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.

Samkvæmt síðunni Stéttarfélag.is verður einnig boðið upp á skemmtiatriðin úr ýmsum áttum, Geirmundur Valtýsson spilar á nikkuna og að venju munu kaffiborðin svigna undan veitingum frá Kvenfélagi Skarðshrepps.

„Félagsmenn sýnum samstöðu og fögnum deginum saman!“ segir loks á heimasíðunni.

Fleiri fréttir