Haustskemmtun Grunnskólans að Hólum í dag

Haustskemmtun Grunnskólans að Hólum í tilefni af degi íslenskrar tungu verður haldin í grunnskólanum í dag kl.16:30. Börn úr leikskólunum Brúsabæ og Barnabæ sýna leikritið Úlfurinn og kiðlingarnir 7. Yngri deild syngur Guttavísur með tilþrifum og frumfluttur verður leikþáttur um Auðun rauða Hólabiskup.

Eldri deild bregður á leik með Þórarni Eldjárn  í söng og leikrænni tjáningu. Eftir skemmtun býður Foreldrafélagið gestum að þiggja kaffi og kökur.

Aðgangseyrir er 1000 kr. Frítt fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri Allir hjartanlega velkomnir.

Fleiri fréttir