Hefja Þorrann á Reykjasafni

Nemendur frá Grunnskólanum á Borðeyri og leikskólanum Ásgarði á Hvammstanga heimsóttu Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í gærmorgun. Þar var þeim sagt sögur í tilefni af Þorra sem hófst með Bóndadeginum í gær.

Krakkarnir fóru saman inn í baðstofuna frá Syðstahvammi og fengu að heyra sögur um hvernig lífið var á tímum forfeðra þeirra, hvernig matur var þá á boðstólum og þar fram eftir götunum. Svo var rölt um safnið og merkilegir gripir skoðaðir.

„Að lokum sungu krakkarnir fyrir okkur. Varla hægt að hugsa sér betri byrjun á góðum degi. Frábært að fá þau í heimsókn og eru þau ávallt velkomin,“ segir á Facebook-síðu safnsins en þar má skoða fjölda af ljósmyndum frá heimsókninni.

Fleiri fréttir