Helgarmarkaðurinn í Kringlumýri um helgina
Helgarmarkaður verður haldinn í Kringlumýri, í Blönduhlíð Skagafirði, núna um helgina, dagana 22. – 23. júní en markaðurinn hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður. Þar má m.a. finna handverk og antík eða eins og segir í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónhornsins: „Ýmislegt gamalt, notað og nýtt. Handverk t.d. þæft, heklað og saumað.“
Opið verður frá kl. 13 – 18 báða dagana.
„Heitt á könnunni. Hlökkum til að sjá ykkur,“ segir loks í auglýsingu.