Helmingi fleiri laxar en allt síðasta sumar

Veiðin í Blöndu og Miðfjarðará hefur verið ævintýraleg í sumar. Úr báðum ánum eru þegar komnir helmingi fleiri laxar en allt sumarið í fyrra og rúmlega það.

Blanda skipar annað sætið á lista Landssambands veiðifélaga yfir aflahæstu ár landsins, með 4017 laxa en alls veiddust 1931 allt árið í fyrra. Miðfjarðará skipar þriðja sæti listans með 3703 laxa en 1694 komu úr ánni í fyrrasumar.

Í níunda sæti listans, sem uppfærður var í fyrrakvöld, er Laxá á Ásum með 1260 laxa og Víðidalsá í Húnaþingi vestra er í 10 sæti með 1007. Þar hafa einnig veiðst umtalsvert fleiri laxar en allt síðasta sumar.

Fleiri fréttir