Hestafimleikakrakkar á ferð í Þýskalandi
Þrettán manna hópur krakka á aldrinum 7-17 ára, sem æfa hestafimleika hjá hestamannafélaginu Þyt, er nú í vikuferð í Þýskalandi, ásamt þjálfurum sínum og tveimur öðrum fararstjórum. Það voru þjálfararnir, þær Irina og Kathrina sem stóru fyrir ferðinni og völdu hópinn sem safnaði fyrir ferðinni með margvíslegri fjáröflun. Frá þessu er sagt á vefsíðu hestamannafélagsins Þyts í Vestur-Húnavatnssýslu.
Í ferðinni hefur hópurinn fengið tækifæri til að æfa á stórum hestum. Á laugardaginn fóru þau svo til Munchen til að horfa á úrtöku fyrir heimsmeistaramót í hestafimleikum sem var mikil upplifun. Veðrið hefur verið frábært allan tímann, frá 26 - 28 stiga hiti og sól.