Þorgrímur Daníelsson, sóknarprestur á Grenjaðarstað hyggst ganga á þrjátíu fjöll og/eða tinda í ágúst til að vekja athygli á Landspítalasöfnun þjóðkirkjunnar. Sem kunnugt er hefur þjóðkirkjan hrundið af stað söfnun til kaupa á geislatæki, svonefndum Línuhraðli, sem notaður er við krabbameinslækningar á Landspítalanum.
Þau tæki sem nú eru í notkun eru komin til ára sinna og bila oft. Með áskorun sinni við tindana vill Þorgrímur hvetja landsmenn til að leggja söfnuninni lið.Hægt verður að fylgjast með ferðum sr. Þorgríms á Facebook- síðunni “30 tindar í ágúst” Þar verður birt gönguáætlun næstu daga eftir því sem veður leyfir.
Fyrsta fjall sem Þorgrímur gekk á er Tröllakirkja inn af Hrútafirði, sem hann fór á í gær. Tröllakirkja losar þúsund metrana, merkt 1001 metrar á kortum. Næstu daga gengur hann á fjöll á suðvesturhorninu, en veðurspáin ræður gönguplani Þorgríms.
Söfnunarreikningur Landspítalasöfnuninnar er 0301-26-050082, kt. 460169-6909.