Hólavegur kaldavatnslaus

Mikill leki kom upp í kalda vatninu á Hólaveginum á Sauðárkróki í morgun. Samkvæmt tilkynningu frá Skagafjarðarveitum er óhjákvæmilegt að loka fyrir vatnið á meðan viðgerð stendur yfir. Eftirfarandi götur eru án vatns eins og stendur: Hólavegur frá Öldustíg að Ránarstíg. Bárustígur ofan Hólavegs og Skagfirðingabraut á milli Bárustígs og Ránarstígs.

Ekki er hægt að segja til um hvenær viðgerð lýkur að svo stöddu, en beðist er velvirðingar á óþægindunum.

Fleiri fréttir