Hópíþrótt sem snýst um samvinnu, traust og aga

Krakkarnir í hestafimleikum hjá Hestamannafélaginu Þyt í Húnaþingi vestra buðu í sirkus þann 22. mars var og sýndu u.þ.b. 160 gestum sem komu í Reiðhöllina á Hvammstanga listir sínar. „Sýningin tókst mjög vel. Krakkarnir voru búnir að æfa stíft, sömdu mörg af atriðunum sjálf og sáu um músíkina og búningana,“ sagði Irina Kamp í samtali við Feyki, en um var að ræða eins konar uppskeruhátíð eftir æfingar vetrarins.  

Hestafimleikar er mjög vinsæl íþrótt um allan heim en á Íslandi eru þeir einungis kenndir í Húnaþingi vestra. Þjálfararnir eru Þjóðverjarnir Irina Kamp og Kathrin Schmitt en þær hafa kennt hestafimleika í samstarfi við Þyt í fjögur ár við miklar vinsældir. Um þessar mundir æfa 32 krakkar á aldrinum 6-17 ára.

„Krakkarnir gera fimleikaæfingar á baki á einskonar tréhesti en líka á alvöru hestum innan taumhrings,“ útskýrir Irina en æfingarnar fara fram bæði í reiðhöllinni og í Íþróttahúsinu á Hvammstanga. „Hestafimleikar eru hópíþrótt og snúast mikið um samvinnu, traust og aga. Það er alveg frábært að sjá hvað krakkarnir njóta sín vel og hafa gaman af.“

Hópurinn hefur verið með margar sýningar, t.d. á Æskan og hesturinn í Reykjavík fyrir nokkrum árum og á Hestafjör á Selfossi í fyrra. Þá fóru 15 krakkar í æfingabúðir til Þýskalands árið 2013 og hafa farið á æfingar í Reykjavík í vetur.

Nú er hópurinn farinn í sumarfrí þar sem sauðburður er framundan hjá Kathrin en Irina segir ætlunina þó að hittast einu sinni á mánuði í sumar og byrja svo aftur af fullum krafti í haust. „Það er mjög mikil vinna að halda utan um svona stóran hóp af krökkum en okkur Kathrin finnst mjög gaman að vinna með þessum snillingum,“ segir hún að lokum.

Meðfylgjandi myndir tók Eydís Ósk Indriðadóttir.

Fleiri fréttir