Huggulegt kaffihúsakvöld í kvöld

Sauðárkróksbakarí býður upp á huggulegt kaffihúsakvöld í kvöld milli klukkan 20 og 22:30. Myndlistasýning Ágústs B. Eiðssonar stendur yfir og vísir af strengjasveit Tónlistarskóla Skagafjarðar mætir á svæðið og  tekur nokkur vel valin jólalög.

Ágúst B. Eiðsson.

Ágúst segir að um örsýningu sé að ræða en myndirnar sýna landslagsstemningar og eru málaðar með olíu á striga. Hægt er að fá þær keyptar ef fólk hefur áhuga en sýningin stendur út janúar 2014.

Fleiri fréttir