Hugsað um barn
Forvarnarverkefnið „hugsað um barn“ var í gangi hjá nemendum 9. bekkjar Grunnskóla Húnaþings vestra frá föstudeginum 28. febrúar sl. og skiluðu nemendur "börnunum" svo af sér þegar þau mættu í skólann á mánudagsmorgunn.
Markmið verkefnisins er að vekja unglinga til umhugsunar um mikilvægi þess að taka ábyrga og sjálfstæða afstöðu til þess hvenær þeir eru tilbúnir að stunda kynlíf. Einnig að opna augu þeirra fyrir mögulegum afleiðingum, s.s. ótímabærum getnaði.
Verkefnið gengur út á það að börnin fá raunveruleiknibarn með sér heim yfir helgi og þeim ber að hugsa um barnið og sinna öllum þörfum þess allan sólarhringinn, frá föstudegi til mánudagsmorguns. Á fimmtudaginn voru foreldrar nemenda í 9. bekk boðaðir á fund með Ólafi Grétari Gunnarssyni þar sem farið var yfir verkefnið. Á föstudaginn kynnti Ólafur Grétar svo verkefnið fyrir nemendunum sjálfum og afhenti þeim „börnin“.
„Raunveruleikabarnið“ hefur fjórar þarfir; það þarf að fá að drekka úr pela reglulega, fá hreina bleyju reglulega, það þarf að láta það ropa, hugga það og passa höfuðið, rétt eins og á ungbarni sem ekki heldur höfði. Raunveruleiknibörnin eru forrituð eftir fimmtán raunverulegum einstaklingum. Ekki er hægt að svindla, því tölvubúnaðurinn sem er inni í barninu skráir alla meðhöndlun. Með „börnunum“ fengu nemendurnir armband sem þau þurftu að láta upp við „barnið“ á innan við tveimur mínútum frá því það fer að gráta, annars skráðist það að barninu var ekki sinnt.
Frá þessu er sagt á norðanátt.is.