Húnvetningur á Handverk og hönnun
Húnvetningurinn Guðmundur Ísfeld tók þátt í sýningunni Handverk og hönnun sem fram fór í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 16.-20. maí s.l. Guðmundur segist hafa fundið fyrir áhuga sýningargesta á handverkinu sem hann kom með á sýninguna, segir á vefnum Norðanátt.is.
Guðmundur Ísfeld býr til ýmsa muni, s.s. tóbakshorn, smjörhnífa, salatáhöld, ostaskera, sultuskeiðar, upptakara, tertuspaða, stækkunargler, bréfahnífa, nælur, hálsmen. Þetta gerir hann úr hráefnum eins og hrossahófum, kýrbeinum, tré, nautshornum, ærleggjum, pálmatré, hreindýrahornum og hrútshornum.
Guðmundur Ísfeld er með Fésbókarsíðu fyrir handverkið, þar sem hægt er að skoða framleiðsluna.