Húnvetningur í undanúrslit í Ísland Got Talent
Elvar Kristinn Gapunay og Sara Lind Guðnadóttir eru komin áfram í undanúrslit í Ísland Got Talent sem sýndur er á Stöð 2. Dansparið hefur æft samkvæmisdansa í 8 ár hjá Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar í Kópavogi en þau eru einungis 12 ára gömul. Elvar Kristinn er barnabarn Björns Hannessonar og Kristínar Sigfúsdóttur frá Laugarbakka.
Dansparið kom fram og sýndu á Unglist á Hvammstanga sl. sumar og vöktu mikla athygli en að sögn Ellenar Drafnar, móðir Elvars, eru þau Elvar og Sara Lind metnaðarfull og stunda æfingar af krafti.
Elvar Kristinn og Sara Lind hafa verið danspar frá því þau voru 5 ára gömul. Ljósmynd/Ellen Dröfn.
„Þau ætla sér langt í dansíþróttinni og eru nú þegar fyrirmynd fyrir marga ungra danspara. Þau hafa sýnt það undanfarin ár að þau hafa alla burði í að vera á meðal þeirra bestu í heiminum ef þau halda áfram sínu striki og munu halda áfram á fara á keppnir erlendis. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þau unnið til 69 gullverðlauna á sínum ferli, allar danskeppnir hér á landi í sínum aldursflokki frá árinu 2010,“ sagði Ellen Dröfn í samtali við Feyki.
Ísland got Talent verður sýndur á Stöð 2 þann 30. mars nk. og eru allir hvattir til að kjósa unga Húnvetninginn í úrslit.
Hér má sjá myndband af Elvari og Söru þegar þau dansa til úrslita í Blackpool í apríl síðastliðnum. Sara er í grænum kjól og þau voru í 4. sæti.
http://youtu.be/_ldDw4h_FHU