Húnvetnska liðakeppnin hefst 8. febrúar

Nú styttist í Húnvetnsku liðakeppnina en fyrsta mótið verður haldið þann 8. febrúar nk. og þá verður keppt í fjórgangi. Samkvæmt heimasíðu Hestamannafélagsins Þyts verður sú breyting frá því í fyrra að lið 4, Austur-Húnvetningar, sáu sér ekki fært að mæta með lið og verða þeir því ekki með í ár.

Boðið verður uppá nýjung samhliða liðakeppninni í ár sem fengið hefur nafnið Bæjarkeppni. Nánar um hana má sjá hér í reglunum að neðan. Á heimasíðu Þyts segir að Bæjarkeppni er keppni þar sem ræktunarbú, hesthús, kvenfélög eða hvaða hópur sem er, býr til 4 manna lið. Nánar um keppnina, sem og reglur liðakeppninnar 2013, má sjá á heimasíðu Þyts.

Mót Húnvetnsku liðakeppninnar verða:

8. febrúar - Fjórgangur
23. febrúar - Smali og skeið
15. mars - Fimmgangur og tölt T7 í 3. flokki og T3 í unglingaflokki
5. apríl - Tölt T3 (fegurðartölt í staðin fyrir yfirferðartölt)

Fleiri fréttir