Íslensk kvikmyndahelgi 22.-24. mars í Selasetrinu

Í tilefni af hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð Íslands bjóða íslenskir kvikmyndagerðarmenn, í samstarfi  við Kvikmyndamiðstöð Íslands og 18 sýningarstaði, landsmönnum í bíó helgina 22. – 24. mars. Fjölbreytt úrval íslenskra kvikmynda verður sýnt víðs vegar um land og í einhverjum tilfellum verða leikstjórar eða aðrir aðstandendur viðstaddir sýningar og svara spurningum að þeim loknum.

Norðanáttin greinir frá því að alls verða sýningar á átján stöðum á landinu og er Hvammstangi einn þeirra, en sýningar verða í Selasetrinu. Sýningarstaðir voru valdir í samráði við menningarfulltrúa hvers landshluta og eftir aðstöðu til sýninga.

Átta sýningar verða í Selasetrinu frá föstudegi til sunnudags og er aðgangur ókeypis.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir