Ísmót á Gauksmýrartjörn

Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur halda sameiginlega ísmót á Gauksmýrartjörn laugardaginn 2. febrúar nk. og hefst mótið kl. 13:30. „Ísinn er spegilsléttur og frábær til útreiða að sögn Jóhanns sem var nýbúinn að prufa hann,“ segir á heimasíðu Þyts.

Keppt verður í tölti í 3 flokkum:

  1. 1.flokki
  2. 2.flokki
  3. Barna og unglingaflokki.

5 keppendur í úrslit i öllum flokkum.

Einnig verður keppt í unghrossaflokki ef næg þátttaka næst, en það eru hross fædd á árunum 2008 og 2009 sem eiga þátttökurétt. Þetta verður 4 ferðir (2 fram og til baka), frjáls reið.

Skráning hjá Kollu á netfangið kolbruni@simnet.is. Lokaskráningardagur er  föstudagurinn 1. febrúar, skráningargjald er 1.000.- hver skráning. Nánari upplýsingar hjá Jóa í síma 869-7992 eða Kollu í síma 863-7786.

Hægt verður að koma hestum í hús á Gauksmýri meðan húsrúm leyfir. Veitingasala verður í veitingasalnum á Gauksmýri.

„Allir að mæta og taka þátt í fyrsta móti ársins og hafa gaman saman,“ segir loks á heimasíðunni.

Ath. Ef fella þarf mótið niður birtist það á heimsíðu Þyts á laugardagsmorgun.

 

Fleiri fréttir