Ísólfur efstur í meistaradeildinni í hestaíþróttum

Ísólfur Líndal Þórisson á Lækjarmóti í Víðidal hefur tekið þátt í meistaradeildinni í hestaíþróttum í vetur en keppnin fer fram í Ölfusi. Ísólfur hefur verið sigursæll í deildinni og sigraði í fimmgangi síðast liðinn fimmtudag á hestinum Sólbjarti frá Flekkudal.

Eftir þrjú mót af átta er Ísólfur efstur að stigum en næstur á hæla honum er knapinn Árni Páll Björnsson en hann stóð uppi sem sigurvegari í meistaradeildinni í fyrra.

Fleiri fréttir