Ítreka mikilvægi þess að hefja framkvæmdi á Vatnsnesvegi strax á næsta ári
Á fundi byggðaráðs Húnaþings vestra á mánudaginn var tekið fyrir bréf frá Innanríkisráðuneytinu þar sem erindi frá því í júní í sumar, varðandi Vatnsnesveg, var svarað. Fram kemur að nýverið hafi verið samþykkt á Alþingi samgönguáætlun áranna 2015 – 2018 þar sem gert er ráð fyrir að byggð verði ný brú á Tjarnará og að framkvæmdir hefjist á árin u 2018. Áformað er að veita 200 milljónir til þeirrar framkvæmdar.
Einnig kemur fram í bréfinu að gert er ráð fyrir allnokkrum en enn óskiptum fjármunum til ýmissa framkvæmda sem miða að því að styrkja og bæta stofn-og tengivegi, með áherslu á ferðamannaleiðir. Á fundinum þakkaði byggðaráð þann góða stuðning sem kemur fram í bréfinu en ítrekaði um leið mikilvægi þess að hefja framkvæmdir strax á næsta ári. Þá væntir byggðarráð þess einnig að fjármagn verði sett í að styrkja og bæta sjálfan veginn um Vatnsnesið.
Tengdar fréttir:
Krefjast viðbótarfjármagns í Vatnsnesveg
Sveitarstjóri komi slæmu ástandi Vatnsnesvegar á framfæri
Fundað um vegabætur sem eru brýnar að mati heimamanna