Jóhann bauð langhæst í Víðidalsá og Fitjá
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
03.10.2013
kl. 13.07
Jóhann Rafnsson, fyrir hönd óstofnaðs félags, átti hæsta tilboðið í veiðiréttinn í Víðidalsá og Fitjá í Húnaþingi vestra. Sjö tilboð bárust en stjórn veiðifélags árinnar hefur ákveðið að hefja viðræður við Jóhann sem hefur undanfarin ár verið leiðsögumaður við árnar.
Tilboð Jóhanns hljóðaði upp á 65,8 milljónir á ári. Næstu boð, nokkrum milljónum lægri, voru frá Rafni Vali Alfreðssyni, leigutaka Miðfjarðarár, og Hreggnasa, sem meðal annars leigir Grímsá og Laxá í Kjós. Meðal þeirra sem voru með enn lægri boð var Pétur Pétursson, leigutaki Vatnsdalsár.