Jóhann Björn og Þóranna Ósk frjálsíþróttafólk Skagafjarðar 2013
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
26.11.2013
kl. 08.32
Uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks í Skagafirði fór fram sunnudaginn 24. nóvember sl. í hátíðarsal Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki. Jóhann Björn Sigurbjörnsson og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir voru útnefnd „Frjálsíþróttafólk Skagafjarðar 2013“ í karla- og kvennaflokkum. Fríða Ísabel Friðriksdóttir og Haukur Ingvi Marinósson voru valin efnilegust í flokki 11-15 ára.
Samkvæmt heimasíðu Tindastóls voru fjölmargar aðrar viðurkenningar veittar fyrir góð afrek og ástundun.
Stór hópur glæsilegra ungmenna sem hlaut viðurkenningar fyrir góð afrek og ástundun. Mynd Tindastóll.is.