Jólaball á Ketilás - Myndir
feykir.is
Skagafjörður
01.01.2014
kl. 23.13
Það er löng hefð fyrir því að halda jólaball á Ketilási í Fljótum á öðrum degi jóla og þá er einnig venjan að messað sé í Barðskirkju. Að þessu sinn varð þó messufall vegna veðurs og færðar og ekki reyndist unt að halda jólaballið fyrr en 29. desember.
Blaðamaður Feykis brá sér á jólaballið þar sem dansað var kringum jólatréð af miklu kappi. Sökum færðar mættu jólasveinarnir á staðinn á snjósleða og eftir að þeir höfðu leikið sér á alls oddi gættu gestir sér á glæsilegu kaffihlaðborði.
.